Á næsta leyti
| 05. Febrúar - Rallýkross |
| 08. Febrúar - Opið hús |
| 15. Febrúar - Opið hús |
| 22. Febrúar - Opið hús |
| 29. Febrúar - Opið hús |
Sýningarakstur á vélhjólum á Ljósanótt
Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness verður með sýningarakstur á vélhjólum og fjórhjólum á laugardaginn næstkomandi.
Það sem gerir þessa sýningu sérstaka er að aksturinn er eingöngu í höndum barna 12 ára og yngri. Það er virkilega skemmtilegt að fylgjast með þessum krökkum því þau koma stöðugt á óvart með flottum akstri.
Að gefa börnum á þessum aldri færi á því að kynnast ökutækjum og réttri meðferð þeirra er mikilvægur liður í bættu umferðaröryggi okkar allra og því hvet ég alla til þess að mæta fyrir aftan SBK húsið í Grófinni kl. 15 á laugardaginn til þess að fylgjast með þessum verðandi meisturum.


