Á næsta leyti
| 22. Febrúar - Opið hús |
| 29. Febrúar - Opið hús |
| 03. Mars - Rallýkross (AÍFS) |
| 07. Mars - Opið hús |
| 14. Mars - Opið hús |
Strandir – fjórhjólaferð
Jæja gott fólk, þá er komið að einni ferðinni enn.
Nú förum við norður á Strandir 19-21 ágúst. Lagt verður af stað föstudaginn 19 ágúst kl. 07:30 frá Pittinum með hjólin á kerrunum. Þeim sem vantar far fyrir hjólin snúi sér til Láka, sem er tilbúin að fara með stóra kerru og þá getur fólk safnast í bíla. Gist verður á Hótel Norðurfjörður og er um svefnpokapláss að ræða.
Þeir sem hafa pantað í ferðina, vinsamlegast gerið skil á greiðslu svo hægt verði að panta. Einungis er hægt að borga með peningum og mun Láki taka við þeim í búðinni.
Svo vill ferðanefndin minna þá á sem voru í stóru ferðinni og vilja eftirláta nefndinni myndir, skal því komið til Rúnars Helga svo hægt verði að halda myndakvöld. Vonumst eftir jákvæðum og skjótum viðbrögðum.
Aðrar upplýsingar um þessa ferð gefur ferðanefndin.
Ferðanefndin
Gunnar 898-4670
Láki 867-1282
Rúnar 896-6691


