Á næsta leyti
| 22. Febrúar - Opið hús |
| 29. Febrúar - Opið hús |
| 03. Mars - Rallýkross (AÍFS) |
| 07. Mars - Opið hús |
| 14. Mars - Opið hús |
Aðalfundi 2011 lokið

Aðalfundur AÍFS var haldinn í gær og voru fundargestir tæplega 30 talsins. Auk þess sem Henning Ólafsson var endurkjörinn formaður voru gerðar breytingar á stjórninni en þeir Guðbergur Reynisson, Gylfi Hauksson og Kristján Gunnarson fara úr stjórn. Þeir munu þó enn starfa í þágu félagsins en Kristján mun stýra nýrri Rallýkrossnefnd og Gylfi ásamt Henning munu stýra Rallý og ökuleiknisnefnd og Guðbergur tekur sæti í varastjórn. Tveir nýjir komu inn í stjórn, þeir Baldur Andri Stefánsson og Rúnar Helgason og bjóðum við þá velkomna inn í starfið.
Stjórn félagsins samanstendur því af:
Henning Ólafsson – Formaður
Árni Gunnlaugsson
Halldór Vilberg Ómarsson
Baldur Andri Stefánsson
Rúnar Helgason
Varamenn:
Guðbergur Reynisson
Páll Antonsson
Nefndir:
Torfæru og jeppadeild – Stjórnin stýrir en Sigfús Benidiktsson hópar nefndina saman
Rallakstur og ökuleikni – Gylfi Hauksson og Henning Ólafsson
Fjórhjól - Gunnar Maríusson og Rúnar Helgason
Húsnæðisnefnd – Baldur Andri Stefánsson
Rallýkrosssvæði – Kristján Gunnarsson
Æskulýðs og forvarnir – Óskar Sólmundarsson og Einar Magnússon
Útgáfunefnd – Halldór Vilberg Ómarsson
Mikið var rætt um félagsgjöld á fundinum en að lokum varð niðurstaðan sú að leggja af fjölskyldugjaldið en halda félagsgjaldi óbreyttu, kr. 3.000 en áfram verður leyfilegt að skrá maka og börn undir 18 ára aldri frítt með. 
Tilkynnt var um val á akstursíþróttamanni AÍFS fyrir árið 2011 en þetta er hluti af forvali fyrir akstursíþróttamann Reykjanesbæjar sem tilkynnt verður um áramótin. Júlíus Ævarsson er bikarmeistari í rallýkrossi 2011 og er hann vel að þessum titli kominn en hann hefur um nokkurt skeið tekið þátt í bæði rallakstri og rallýkrossi með góðum árangri.
Stjórnin óskar Júlla til hamingju með titilinn.
Jóhann B Magnússon formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar tók þá til máls og kynnti að af 3.200 iðkendum hjá ÍRB eru 172 komnir frá AÍFS. Hann hvatti félagsmenn til þess að halda áfram á sömu braut og talaði um að félagstarfið setji skemmtilegan brag á bæjarlífið.
Félagið hefur nú 181 félagsmenn innan sinna vébanda en árið 2012 verður Akstursíþróttafélag Suðurnesja 30 ára og er ætlunin sú að koma sterkt inn á afmælisárinu. Með öflugan hóp fólks verður þetta afmælisár því vonandi það stærsta og flottasta hingað til en stefnt er að því að halda tvær rallýkross keppnir, tvær autoX keppnir, eina rallýkeppni, gó-kart keppni og torfærukeppni. Auk þess verður leikdagur félagsins haldinn með pompi og prakt eins og vera ber og lokahnykkurinn verður svo Lokahóf LÍA/ÍSÍ sem haldið verður í Reykjanesbæ í lok ársins.


