Innskráning

Á næsta leyti

05. Febrúar - Rallýkross
08. Febrúar - Opið hús
15. Febrúar - Opið hús
22. Febrúar - Opið hús
29. Febrúar - Opið hús

Valseðill

Mynd úr safni

Fyrsta skóflustungan að ökugerði

 

Miðvikudaginn 3 feb kl. 11:30 var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri og glæilegri akstursbraut hér í reykjanesbæ, nánar tiltekið við grindavíkurafleggjara.  Fyrst og fremst er hugsunin sú að ungir ökumenn fái þarna tækifæri til þess að æfa viðbrögð í erfiðum aðstæðum, á blautum vegi, í hálku o.s.f.v. en skortur hefur verið á þannig aðstöðu síðan reglugerð var samþykkt á alþingi sem fyrirskipar að allir nýjir ökumenn skuli stunda æfingarakstur á þar til gerðri hálkubraut.  Það er Nesbyggð ehf sem stendur fyrir framkvæmdunum fyrir hönd Ökugerðis ehf. en áætlað er að fyrsta áfanga verkefnisins ljúki nú í vor.

Nokkrir stjórnarmenn AÍFS mættu á staðinn til að kynna sér nánar áætlanir Ökugerðis ehf en ásamt stóru og fullkomnu ökugerði er ætlunin að hafa þarna ríflega 900m Go-Kart braut.  Í fyrsta áfanga verður lokið við byggingu ökugerðisins með tilheyrandi hálkubraut en líkur má leiða að því að braut þessi nýtist í margar tegundir akstursíþrótta s.s drift, supermoto, og jafnvel kappakstur og eða tímatöku.

{jcomments on}

Hvað framtíðin síðan ber með sér er ómögulegt að spá fyrir um en möguleikarnir eru svo til endalausir og hafa verið viðraðar hugmyndir um braut fyrir fjórhjól, rallýkross og jafnvel aðstöðu til torfærukeppna.

Stjórn AÍFS óskar Nesbyggð, Ökugerði ehf. og ökumönnum öllum til hamingju með þennan merka áfanga.

Skráðu þig í félagið hér