Innskráning

Á næsta leyti

05. Febrúar - Rallýkross
08. Febrúar - Opið hús
15. Febrúar - Opið hús
22. Febrúar - Opið hús
29. Febrúar - Opið hús

Valseðill

Mynd úr safni

Skagafjarðarrallið

Þriðja umferð íslandsmótsins í rallakstri fer fram um næstu helgi eða nánar tiltekið á laugardaginn 24. Júlí. Það er Bílaklúbbur Skagafjarðar sem heldur þessa keppni sem er að verða einskonar þjóðhátíð rallara enda veðrið yfirleitt gott og móttökurnar alltaf frábærar.

Keppnin sjálf hefst með fundi keppenda kl. 19 föstudaginn 23 júlí en fyrsti bíll fer af stað frá Vörumiðlun Suðárkróki kl. 9 á laugardagsmorgun. Eknar varða leiðir um: Nafir, Bakka og Mælifellsdal. Mælifellsdalurinn hefur lengi verið talin ein skemmtilegasta sérleið landsins en þessi 25km leið er um leið erfið, hröð og á köflum stórvarasöm.

Heyrst hefur að fjórar AÍFS áhafnir muni taka þátt í þessari keppni og því er tilvalið að mæta á Krókinn og hvetja sína menn áfram. 50% afsláttur er á tjaldstæðinu fyrir rallara og kostar miði á rallýballið um kvöldið ásamt kvöldverði kr. 3.000

 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá keppnistjóra:

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hér má finna pdf skjal með öllum upplýsingum.

Tímaáætlun í PDF formi

Rásröð í PDF formi

Undir vídeó hér á síðunni má finna þetta myndband frá 2008 rallinu