Innskráning

Á næsta leyti

05. Febrúar - Rallýkross
08. Febrúar - Opið hús
15. Febrúar - Opið hús
22. Febrúar - Opið hús
29. Febrúar - Opið hús

Valseðill

Mynd úr safni

Tvöfaldur AÍFS sigur um helgina

Þriðja umferð íslandsmótsins í rallakstri fór fram í nágrenni Suðárkróks nú um helgina.  17 áhafnir mættu til leiks í blíðskaparveðri en eknar voru leiðir um mælifellsdal og nafir.  Það voru okkar menn þeir Jón og Borgar á Imspresa STI sem óku hraðast af öllum en þeir luku þessari 110 km keppni 52 sekúndum á undan þeim Sigurði Braga og Ísak á Evo 7.   Í eindrifsflokki var barátta á milli tveggja AÍFS áhafna fram á síðustu sérleið en á endanum voru það þeir Kristján og Halldór á Pegout sem höfðu betur en fast á hæla þeim fylgdu Henning og Árni á Corollu.   Í jeppaflokki voru það Sighvatur og Andrés á Pajero sem sigruðu örugglega með tæpar tvær mínútur í forskot á skötuhjúin Kristinn og Brimrúnu sem óku Cherokee.

Það var Bílaklúbbur Skagafjarðar sem hélt þessa keppni í samvinnu við Kaffi Krók, Vörumiðlun, Dögun og Kaupfélag Skagfirðinga.

Hér má sjá alla sérleiðatíma