Íslandsmótinu í torfæru lokið

Nú um helgina fór fram síðasta umferð íslandsmótsins í torfæru. Keppnin var haldin í stapafelli og var þetta í fyrsta skiptið í nokkur ár sem AÍFS heldur torfærukeppnina hér fyrir sunnan en síðustu ár höfum við farið norður á Blönduós með keppnina. Brautirnar voru í auðveldari kantinum til þess að byrja með og það virðist hafa slegið suma ökumennina útaf laginu því í seinni hluta keppninnar urðu brautirnar mun tæknilegri og áttu þá nokkrir í erfiðleikum með að komast alla leið upp.
Fyrir þessa síðustu umferð voru tveir menn sem höfðu möguleika á titli í flokki sérútbúna bíla en það voru þeir Hafsteinn Þorvaldsson og Jón Örn Ingileifsson. Jóhann Rúnarsson var síðan í slag við Ólaf Braga Jónsson um þriðja sætið.
Jón Örn Ingileifsson tryggði sér íslandsmeistaratitil í sérútbúna flokknum með flottum akstri. Hafsteinn lenti í fjórða sæti í þessari keppni og varð því að sætta sig við annað sætið í íslandsmótinu. Jóhann Rúnarsson náði að verja sitt sæti þrátt fyrir að hafa ekki fengið stig útúr þessari keppni en Ólafur Bragi hefði þurft að sigra þessa keppni til þess að ná þriðja sætinu í íslandsmótinu.
Í flokki götubíla var það Haukur Þorvaldsson sem var búinn að tryggja sér titilinn en hann hafði 16 stiga forskot á Steingrím Bjarnason. Fast á hæla Steingríms fylgdi Stefán Bjarnhéðinsson en þeir voru jafnir að stigum fyrir þessa keppni.
Steingrímur kom sá og sigraði þessa keppni og kom sér þannig tryggilega fyrir í öðru sætinu í íslandsmótinu. Hann gat þó ekki náð Hauki þrátt fyrir að Haukur hafi ekki fengið stig í þessari lokaumferð.
Hér eru úrslitin úr keppninni (Sérútbúnir)
|
Ökumaður |
Bíll |
Stig |
|
|
Jón Örn Ingileifsson |
Kórdrengurinn |
2730 |
|
|
Ólafur Bragi Jónsson |
Fjallarefurinn |
2568 |
|
|
Haukur Þorvaldsson |
Torfan |
2515 |
|
|
Hafsteinn Þorvaldsson |
Torfan |
2491 |
|
|
Leó Viðar Björnsson |
Iron Maiden |
2487 |
|
|
Benedikt H. Sigfússon |
Hlunkurinn |
2460 |
|
|
Björn Bragi Sævarsson |
Heimasætan |
2200 |
|
|
Sigfús G. Benediktsson |
Hlunkurinn |
2173 |
|
|
Jóhann Daði Pálmarsson |
Land-Rover |
2073 |
|
|
Vignir R. Vignirsson |
Willys |
1937 |
|
|
Kristján F. Sæmundsson |
Iron Maiden |
1869 |
|
|
Jóhann Rúnarsson |
Trúðurinn |
1820 |
|
|
Ragnar Skúlason |
Kórdrengurinn |
1642 |
|
|
Róbert Agnarsson |
Heimasætan |
1580 |
|
|
Sigurður Reynirsson |
Land-Rover |
1242 |
Hér eru síðan úrslitin í Götubílaflokk
|
Ökumaður |
Bíll |
Stig |
|
|
Steingrímur Bjarnason |
Willys Jeep |
2370 |
|
|
Páll Pálsson |
ASP Willys |
2242 |
|
|
Magnús Sigurðsson |
Suzuki Jimmy |
2080 |
|
|
Ívar Guðmundsson |
Kölski |
1975 |
|
|
Ingólfur Guðvarðarsson |
Pollabuxur |
1835 |
Hér að neðan er stigagjöfin í íslandsmótinu:






