Innskráning

Á næsta leyti

22. Febrúar - Opið hús
29. Febrúar - Opið hús
03. Mars - Rallýkross (AÍFS)
07. Mars - Opið hús
14. Mars - Opið hús

Valseðill

Mynd úr safni

Akstursíþróttafélag Suðurnesja

 

Akstursíþróttafélag Suðurnesja (AÍFS) er hagsmunafélag um hvers kyns akstursíþróttir en félagið var stofnað árið 1982 og hefur staðið fyrir ótal rallýkeppnum , torfærukeppnum, rallýkrossi og gókartkeppnum síðan þá.

 

Markmið félagsins eru:


1. Að stuðla að bættri umferðarmenningu, góðum búnaði ökutækja og efla áhuga almennings með fræðslu og upplýsingastarfsemi um meðferð ökutækja.
2. Að vekja áhuga eigenda ökutækja á betri umgengni um náttúru landsins með námskeiðahaldi og annarri fræðslu.
3. Að beita sér fyrir því að hagsmunir ökutækjaeigenda gagnvart opinberum aðilum séu virtir.
4. Uppbygging keppnissvæða til keppna í hinum ýmsu tegundum akstursíþrótta eða tryggja að félagsmenn hafi aðgang að góðum keppnissvæðum er svari til þeirra krafna er gerðar eru til slíkra mannvirkja á hverjum tíma.
5. Rekstur félagsheimilis og halda mannvirkjum í eigu félagsins í sem bestu ástandi.
6. Keppnishald í hinum ýmsu tegundum akstursíþrótta á öruggum svæðum með fagmennsku og og öryggi keppenda , áhorfenda og keppnishaldara að leiðarljósi

 

Félagið var endurvekið af stuttum blundi á félagsfundi í nóvember 2009 og stefnan tekin á að fjölga keppnisgreinum með það að markmiði að gefa sem flestum kost á því að gerast keppendur í hvers konar mótorsporti, m.a. með því að halda keppnir í akstursleikni, drifti og fleiri greinum sem ekki krefjast jafn mikið útbúinna tækja og rallý, torfæra ofl.

Einnig var ákveðið að stofna til fjórhjólanefndar innan vébanda AÍFS og efna til keppna og ferða um landið á fjórhjólum. Fjórhjólaeigendur á suðurnesjum boðnir velkomnir og verður brýnt fyrir ferðamönnum að utanvegakstur er áhugamálinu ekki til framdráttar en stjórn AÍFS eru mjög á móti utanvegaakstri og vill í samvinnu við hlutaðeigandi reyna að stöðva óþarfa skemmdir á landinu okkar.

Félagsfundir eru haldnir síðasta miðvikudag í hverjum mánuði en frekari upplýsingar um þá er að finna á dagatali klúbbsins á www.aifs.is

Netfang stjórnar er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.